hæhæ stelpur mínar.... langaði að gera smá ferðablogg um dk.... aðeins að lífga uppá síðuna 
komum út á Þriðjudagsmorgun.... frændi minn var svo æðislegur og ætlaði að koma að sækja okkur úta flugvöll(lentum sko klukkan 6 um morgun) en allt kom fyrir ekki.... hann steinsvaf yfir sig og við héngum útá flugvelli og héldum í vonina um að hann myndi koma.... á endanum tókum við lestina bara heim til hans...
lágum svo í leti fyrsta dagin og fengum íbúðina og svoleiðis...
á miðvikudeginum fórum við í Bakken tivoli og dyrehaven... það er svona skógur sem eru laus dýr .. sáum Bamba og gáfum þeim að borða
á fimmtudeginum fórum við aðeins á strikið og svo í fields(mollið með Óla,Guðrúnu og Anítu Karen... versluðum smávegis...
á föstudeginum fórum við svo í fisketorvet(moll)... versluðum helling, Ægir keypti sér tvenn jakkaföt,skyrtur,bindi og allan pakkan og ég tvö skópör og boli og svona skemmtilegt...um kvöldið fórum við svo á tónleika í tivoliinu....
Á laugardeginum fórum við svo á strikið og versluðum aðeins..... síðan fórum við í christaniu... rosa gaman að sjá þetta... fólk reykjandi hvar sem er og hvenær sem er
Á sunnudeginum fórum við í rennibrauta og skemmtigarð í klukkutíma fjarlægð frá því sem við vorum.... allveg geggjað gaman.... klikkaðu rússibani sem eg fór í... að ég hafi þorað í hann finnst mér mesta furða...

Á mánudeginum fórum við svo bara að rölta aðeins a strikinu og svona og síðan kíktum við aðeins í fields og síðan fórum við í sund... sem var rosa fínt
fór á risa stökkpall
Á þriðjudeginum tókum við því svo bara rólega og gengum frá öllu og síðan tókum við kvöldflug heim eftir frábæra ferð
Takk fyrir okkur elsku Guðrún og Siggi :*
Helgin hjá mér var svo bara hin rólegasta... kíkti á þessa tónleika á föstudeginum sem mér fannst bara þrusu gaman...
á laugardeginum var ég svo bara að vinna og eftir vinnu fór ég heim í sturtu og svona og svo til bróður hans Ægis í hammara.... þaðan fórum við svo öll niður í bæ og vorum þar, þar til að flugeldasýningunni lauk.... rosa flott...þá fórum við bara heim að sofa... 
sunnudagurinn fór svo bara i allgjöra leti...hékk heima allan daginn... kíkti svo aðeins til systur hennar mömmu og svo heim að horfa á spólu og svo sofa
í gær var ég svo bara að vinna frá 4-8 og fór svo í ljós beint eftir það.... kíkti svo aðeins á Thelmu og litaði og plokkaði á henni augabrýrnar... þannig að ef að þið sjáið gangandi hryðjuverk þa er það bara Thelma... hah nei ég segi svona..þetta var nu ekkert svo slæmt...
Í dag er eg svo bara búin að vera að gera mest lítið..´fór og keypti eikkerjar bækur og svo er ég bara að passa frænku hans Ægis nuna... fer að vera búin
svo er það bara skólinn sem tekur við á morgun...rosa stuuð...
Í Dag fæddist svo lítill(stór) prins..... kærastinn hennar mömmu var að eignast sitt þriðja afabarn og hann var hvorki meira né minna en 19 merkur og 55 cm
ekkert smá stór... get ekki beðið eftir að fá að sjá hann :* vil óska Láru,Nonna og Kolbrúnu Innilega til hamingju með prinsinn:*

kveð að sinni.....
Harpa 